Hjálp óskast
En samt eitthvað svo glatað
Að auglýsa vefslóð
Íslensk tónlist er góð
Marklaust hjá ÍMARK
Serenity
Minnis-triggerar
Lagið sem drap Bítlana
Do Anything
freyr.fresnik.com |
||
| ||
|
Random quote
The following statement is true: The previous statement was false.
Safn
Nýjustu færslurnar
Fjarstýringaeinföldun
Hjálp óskast En samt eitthvað svo glatað Að auglýsa vefslóð Íslensk tónlist er góð Marklaust hjá ÍMARK Serenity Minnis-triggerar Lagið sem drap Bítlana Do Anything
Plögg
--
fresnik.com
16:53:06 up 160 days, 4:36, 2 users, load average: 0.14, 0.17, 0.12
|
apríl 12, 2006FjarstýringaeinföldunSiðasta haust keypti ég Universal MX-500 fjarstýringu frá Newegg.com. Þetta er frábært tæki sem er auðveld í notkun og með forritanlega takka á skjá, þannig að jafnvel gestir sem koma í heimasókn sem hafa aldrei séð heimilistækin áður geta lært að stjórna þau á met-tíma. Helsti kosturinn er samt plássið sem myndaðist á stofuborðinu. Fyrir: Eftir:
Freyr skrifaði þetta þann 12. apr 2006 kl. 13:41 | Varanleg slóð
| Athugasemdir (4)
mars 7, 2006Hjálp óskastEftirfarandi auglýsing hefur birst núna nokkrum sinnum í blöðunum en þó með misgóðum árangri. Ég vil því nota tækifærið og plögga hér: Góð manneskja óskast til að gæta 3 barna eftir þörfum á daginn. Verður að vera reyklaus. Föst laun. Áhugasamir hafi samband í síma 551 0528. Um er að ræða hlutastarf þar sem viðkomandi þarf að geta hlaupið í skarðið þegar t.d. börnin verða lasin, leikskólinn lokaður eða dagmannan lasin, helst með stuttum fyrirvara (í það minnsta dagsfyrirvara). Það er því sjaldnast sem viðkomandi þarf að passa öll 3 börnin í einu. Föst laun þýðir að við erum til í að borga ákveðna upphæð, hvort sem við biðjum viðkomandi að mæta eða ekki og borgum jafnvel aukalega ef við biðjum viðkomandi að mæta meira en ákveðinn tímafjölda á mánuði.
Freyr skrifaði þetta þann 7. mar 2006 kl. 07:20 | Varanleg slóð
mars 2, 2006En samt eitthvað svo glataðÍslendingar hafa alltaf tekið Eurovision full alvarlega og látið keppnisskapið stíga sér til höfuðs, alveg síðan að við ætluðum að leggja undir okkur Evrópu með Gleðibankann. Reyndar höfum við tvisvar slakað á og sent frekar lag sem okkur fannst bara skemmtilegt, nefnilega Sókrates árið 1988 og Minn Hinsti Dans árið 1997. Það er eins og að við fáum nóg af Eurovision-rembingnum á 9 ára fresti. Það hefur varla farið framhjá neinum að í ár erum við að endurtaka leikinn, Silvía Nótt hlaut rússneska met-kosningu og það er alveg á hreinu að engin af þeim sem gáfu henni þessi 70.000+ atkvæði eru að ætlast til þess að lagið rústi þessu dæmi og fái tremma mörg stig, þó svo að það væri óneitanlega skemmtilegur bónus. Annað held ég að gildi um þá sem kusu Þér við hlið, lagið sem Regína söng og hlaut yfir 30.000 atkvæði. Það er lag sem við höfðum ætlast til að mundi vinna og ef það hefði unnið undankeppnina værum við vafalaust að tapa okkur yfir "stúlkunni okkar" og því epíska meistarastykki sem við ætlum að senda til Grikkalands. Kannski hefði það náð langt, kannski ekki. Persónulega mundi ég vilja senda það á næsta ári, þegar við erum komin í Eurovision-rembinginn aftur, en sennilega fáum við aldrei að vita hvernig Evrópubúar taka því lagi. Þjóðarsálin virðist ekki vera stemmd fyrir því núna. Í ár ætlum við að skemmta okkur, sama í hvaða sæti við lendum. Sjáumst svo aftur árið 2015.
Freyr skrifaði þetta þann 2. mar 2006 kl. 08:49 | Varanleg slóð
| Athugasemdir (2)
mars 1, 2006Að auglýsa vefslóðMér finnst það alltaf jafn skrítið að heyra auglýsingar í útvarpinu eða sjá þær í umferðinni, t.d. á skiltum eða á strætisvögnum, þar sem vefslóð á vefsíðu fyrirtækisins er sérstaklega tekin fram. Mér finnst það reyndar líka skrítið að þegar ég segi fólki frá einhverri síðu þá spyr það um vefslóðina, jafnvel tilbúið að skrifa hana niður. Meiri að segja þegar mér er sagt frá einhverri vefsíðu verður fólk oft hissa á því að ég skuli ekki spyrja um vefslóðina ef ég hef á annað borð sýnt einhvern áhuga. Ég vil því endilega benda fólki á að síðan árið 1998 hefur verið til leitarvél sem heitir Google. Þú kannast kannski við hana. Þegar ég segi fólki frá því að það séu komnar nýjar myndir á heimasíðu barnanna, þá er ég ekki að ætlast til þess að þú munir vefslóðina eða þurfir einu sinni að skrifa hana niður. Ég er ekki heldur að ætlast til að þú farir á Barnaland (sem virðist vera de facto síðan fyrir börn á Íslandi) og eyðir tíma í oft fánýta leit. Nei, það eina sem ég ætlast til af þér er að fara á Google og slá inn eitthvað sem gæti vísað þér á vefsíðu barna minna, t.d. nafnið mitt, barnsmóður mína eða jafnvel eitthvert barna minna (ég get þó skilið ef fólk sem er lítið í sambandi við mann hafi þau ekki). Til þeirra fyrirtækja sem er að eyða samtals fleiri milljónum króna í að auglýsa vefslóð þá vil ég benda á að eyða frekar þeim peningum í eitthvað nytsamlegra. Jafnvel endurtekningar á nafni fyrirtækis eða stikkorð sem lýsa starfsemi þess skilar betri árangri en að auglýsa bara vefslóðina. Stórt skilti úti í bæ sem stendur ekkert á nema "www.komduhingad.is" á ekki eftir skila neinu því að í fyrsta lagi ætla ég ekki að fara skrifa niður slóðina, allra síst ef ég er að keyra, og í öðru lagi vantar upplýsingar um hvað er að finna á vefsíðuna. Ef þetta væri t.d. fyrirtæki sem seldi gæludýr væri nærri lagi að auglýsa t.d. "Komdu hingað, Hvutti." með mynd af hundi og/eða öðrum gæludýrum og undirskriftina "Komdu Hingað Gæludýr". Engin vefslóð. Ef fyrirtækið hefur auglýst sig vel þá ættu að vera góða líkur á að fyrirtækið komi upp á fyrstu leitarsíðu þegar "Gæludýr" er slegið inn á Google og nánast öruggt að vefslóðin komi upp efst ef leitarstrengurinn inniheldur nánari upplýsingar, s.s. nafn á fyrirtæki eða staðsetningu. M.ö.o. þá hefur mikilvægi vefslóða minnkað með tilkomu leitarvéla og orðið að algjöru aukaatriði með tilkomu Google.
Freyr skrifaði þetta þann 1. mar 2006 kl. 09:19 | Varanleg slóð
| Athugasemdir (2)
febrúar 11, 2006Íslensk tónlist er góðÉg er búinn að vera að vinna síðan snemma í morgun. Það eru fáir hérna, sem mér finnst þægilegt, get látið tónlistina rúlla og fengið það næði sem einhvernveginn gerir mig afkastameiri en venjulega. En í dag hef ég verið óvenjulega hugmyndaríkur og afkastamikill. Ég fór að spá í hver ástæðan væri, svona til að geta komist í þennan gír aftur, fór ég að spá í playlistann hjá mér og tók eftir því að þennan morgunin hefur verið óvenjulega hátt hlutfall af íslenskum lögum (eða réttara sagt lög eftir íslenskar hljómsveitir). Ég vil því þakka eftirfarandi aðilum: Ampop, Baggalútur, Byltan, Dáðadrengir, Dr. Spock, Dr. Gunni, Egó, Erla Þorsteinsdóttir & Haukur Morthens, Gus Gus, Hjálmar, Hraun!, Hrekkjusvín, Igore, Leaves, Mínus, Mugison, Quarashi, Selma, Sessý, Silvía Nótt, Stuðmenn, Todmobile, Trabant, Vínyll, Þórir. Nýlegar tónlistar-uppgötvanir hjá mér (fyrir utan þær íslensku) eru Trans-Siberian Orchestra og Mint Royale. TSO uppgötvaði ég þegar ég rakst á þessa klippu á netinu fyrir síðustu jól. Lagið heitir Wizards in Winter. Mint Royale tók ég eftir þegar ég sá þessa auglýsingu frá Volkswagen. Lagið sjálft fæst hér. Enjoy.
Freyr skrifaði þetta þann 11. feb 2006 kl. 11:57 | Varanleg slóð
| Athugasemdir (1)
|
|