freyr.fresnik.com : apríl 2003

Random quote
When everything is coming your way, you're in the wrong lane.
Leit

Safn
Nýjustu færslurnar
Plögg
Get Firefox!
--
fresnik.com
15:24:57 up 281 days, 3:08, 2 users, load average: 0.33, 0.50, 0.38

apríl 30, 2003

"Írakskar" pælingar með pólitskum undirtóni

Eitt sem hefur böggað mig mikið undanfarið er málfræði fólks og meðhöndlun -sk endinga, sér í lagi þegar Írak er fyrri hluti orðsins. Nánast daglega heyri ég talað um "írakskar hersveitir" eða "uppgjöf írakskra herforingja", og það hjá fréttamönnum. Það að þetta séu fréttamenn sem mæla þetta eða skrifa (notabene, það er aldrei stór stafur í -sk orðum, eitthvað sem allir virðast hafa gert rétt, ólíkt hinu) fékk mig til að endurhugsa málið. Er virkilega rétt að búa til -ksk orð? Ég meina, maður hefur alltaf talað um reykvíska hluti frekar en reykvíkska, ekki satt?

Lesa meira

Freyr skrifaði þetta þann 30. apr 2003 kl. 14:27 | Varanleg slóð | Athugasemdir (1)

apríl 29, 2003

Koop - Glomd

Lag vikunnar heitir því skemmtilega nafni Glomd með hljómsveitinni Koop. Ég veit voðalega lítið um þessa hljómsveit annað en það sem stendur á þessari síðu - ég veit ekki einu sinni hvað Glomd þýðir, nema þetta eigi að vera Glömd, sem þýðir "gleymdur" á sænsku.

Lagið sjálft er voðalega mjúkt, rafræn jazz/fusion blanda með söng sem heillar. Góða skemmtun!

Freyr skrifaði þetta þann 29. apr 2003 kl. 17:09 | Varanleg slóð

apríl 22, 2003

Dr. Spock - Andskotinn

Lag vikunnar að þessu sinni er lagið Andskotinn með hljómsveitinni Dr. Spock. Skemmtileg blanda af þungarokki og fönki með ogguponsu jazz-takta. Óttar Proppé er krúttlegasti söngvari Íslands.

Freyr skrifaði þetta þann 22. apr 2003 kl. 16:14 | Varanleg slóð

apríl 15, 2003

Electric Six - Danger (High Voltage)

Þetta lag er náskylt lag síðustu viku að því leyti að þetta lag er í miklu uppáhaldi hjá meðlimum Moonboots og kemur oft fyrir á giggum hjá þeim.

Hér er að finna lagið sjálft og hér er að finna hið ómissandi myndband (33 MB innanlands).

Freyr skrifaði þetta þann 15. apr 2003 kl. 12:46 | Varanleg slóð

apríl 9, 2003

Dark City vs. The Matrix

Ég var aldrei búinn að pæla í því hversu ótrúlega líkar Dark City og The Matrix eru. Það er bara ekki fyndið. Reyndar man ég eftir því þegar ég horfði á Dark City á DVD með audio commentary að undir lokin, þegar kreditarnir rúlla, þá segir einhver eitthvað eins og "we're also working on this movie called 'The Matrix'".

Ég fór því á imdb.com þar sem hægt er að slá inn nafnið á mörgum myndum og séð hverjir unnu saman. Þegar þessar tvær myndir eru slegnar inn kemur í ljós að nánast allir í listrænni stjórnun og tæknibrelludeildinni unnu saman að báðum myndunum:


Hér er að finna myndir af svipuðum hlutum og staðsetningum og hér er skoðað hvað er líkt með söguþráðum og útfærslur nokkra atriða. Mjög svo áhugavert, ekki satt?

Freyr skrifaði þetta þann 9. apr 2003 kl. 00:26 | Varanleg slóð | Athugasemdir (4)

apríl 8, 2003

Moonboots - Amadeus

Fyrsta lag vikunnar er með íslensku ofurhljómsveitinni Moonboots og er endurgerð þýska ofursmellsins Amadeus, upprunalega gert ofurfrægt með ofurtónlistarmanninum Falco. Þetta lag er vægast sagt ofur, enda kenndi ég þessum strákum allt sem þeir kunna.

Skylduspilun í hvaða partý sem er, sem og öðrum uppákomum.

Lagið kemur í tveimur útgáfum:
Amadeus - Super Groovy Mein Gott in Himmel Mix - featuring W.M.A.

Amadeus feistige megamix - featuring 17. júní

Freyr skrifaði þetta þann 8. apr 2003 kl. 15:48 | Varanleg slóð | Athugasemdir (1)

Lag vikunnar: Amadeus

Ég ætla að feta í fótspor svo margra annarra og reyna halda uppi reglulegum innsendingum á lögum undir svonefndum "Lag Vikunnar" hluta. Vonandi hef ég slegið nógu stóran varnagla með því að hafa nýtt efni vikulega frekar en daglega, en ef að svo fari að ég hafi of mikið efni þá set ég bara inn "Aukalag vikunnar". Nú er hægt að finna nýjasta "lag vikunnar" í dálkinum hér til vinstri til að hafa allt sem aðgengilegast. Smellið á "meira..." til að fá smá umsögn um lagið og möguleika á að bæta við ykkar áliti.

Það eru Moonboots sem eiga heiðurinn að því að eiga fyrsta lagið sem ég set inn, en það er gamli eighties smellurinn Amadeus. Þrefalt húrra fyrir Moonboots og þeirra útsetningu á þessu lagi!

Að vísu skilst mér að þeir hjá FM957 vilji ekki setja lagið í spilun hjá sér vegna þess að þetta er ekki útgefið af Skífunni. Það er nú hálf fúlt, ég er oftast með stillt á þá stöð vegna fjölbreytilega lagaspilunnar og hnittin skot útvarpsmannanna á ýmis mál sem snerta okkur öll... eh...

Freyr skrifaði þetta þann 8. apr 2003 kl. 09:47 | Varanleg slóð

apríl 5, 2003

Annað heimsveldi

Ein af tilvísunum sem birtist undir "Random quote" hér til vinstri hljómar svona:

Geeks aren't interested in politics because government doesn't double its efficiency and speed once every 18 months.
(Óþekktur höfundur)

Í fyrstu fannst mér þetta fyndið og sniðug tilvísun og setti hana inn sem slíka, en eftir að hafa lesið þessa grein (innanlands PDF) þá fékk hún aðeins aðra merkingu í mínum augum.

Í megindráttum (fyrir þá sem nenna ekki að lesa) þá fjallar þessi grein um hvernig Bandaríkin er orðið óstöðvandi heimsveldi - ef þeir vilja fara í stríð, þá fara þeir í stríð alveg sama hvað alþjóðleg lög og stofnanir segja. Og engin getur gert neitt í því því það er ekki lengur til annað heimsveldi til að stöðva þá. Höfundur greinarinnar vill hins vegar meina að nýtt heimsveldi sé að rísa sem gæti átt þátt í að móta ákvörðunartöku stjórnvalda. Ólíkt því sem hefur áður þekkst þá tilheyrir þetta heimsveldi ekki neinu einu þjóðfélagi og hagsmunir þess endurspeglar það.

Hvort að það sé eitthvað til í þessu eða ekki get ég ekki sagt til um, en þetta er allavegna ansi mögnuð pæling sem virkar í samræmi við ofangreinda tilvísun. Þetta er í það minnsta góð lesning. Mæli með þessu.

Freyr skrifaði þetta þann 5. apr 2003 kl. 23:59 | Varanleg slóð

apríl 4, 2003

Stoltur íbúðareigandi

Ég er svo glaður, í dag borgaði ég fyrstu afborgun af íbúðinni okkar. Þó að við gerðum kauptilboð fyrir tæpu ári síðan og skrifuðum loks undir kaupsamning fyrir 2 mánuðum þá finnst mér samt ekki eins og þetta sé mín eign fyrr en að ég hafi látið peninga af hendi, kallið mig efnishyggjumann ef þið viljið.

Hins vegar er efnishyggjan fljót að hverfa þegar maður skoðar yfirlitið:

Afborgun á nafnverði          3.210,10
Afborgun verðbóta 40,10
Vextir 64.900,20
Verðbætur v/vaxta 811,60
Tilkynningar- og greiðslugjald 195,00
-------------
Til greiðslu 69.157,00

Ég á s.s. rúmlega þrjú þúsund krónur í 14 milljón krónu íbúðina mína, restin af afborguninni eru gjöld búin til af jakkafatafólki. Súper segi ég nú bara.

Já, og aðeins 477 afborganir eftir... þetta verður búið áður en maður veit af.

En stoltur er ég.

Freyr skrifaði þetta þann 4. apr 2003 kl. 11:40 | Varanleg slóð

apríl 3, 2003

Margmiðlun -> Einmiðlun

Í gær komu Siggi Palli og Jósi í heimsókn og við horfðum á Bowling for Columbine. Þessi mynd er einstök snilld sem ég mæli með að allir fari að sjá á 101 kvikmyndahátíðina núna í apríl.

En ég ætla nú ekki að koma með meira rant um þessa mynd, enda hefur hún fengið allt hrós sem hægt er að gefa henni. Hins vegar var ég svo sniðugur að ná í fréttamannaviðtalið við Michael Moore, leikstjóra (m.fl.) myndarinnar, strax á eftir óskarsverðlaunaafhendinguna (innanlandsdánlód hér [25,7 MB]). Það kemur margt sniðugt fram þar og Michael fær að tjá sig aðeins lengur en í 45 sekúndur og án truflanna.

Eins og hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum, þá er ég mikill Linux maður, en þessi klippa er á ASF formatti (Microsoft Advanced Streaming Format) og því ekki hægt að spila í neinni margmiðlunargræju sem fylgir Mandrake Linux 9.1, ekki frekar en WMV (Windows Media Video), MOV (Apple Quicktime), RM (Real Media) eða fleiri "obscure" vídeó standarda.

Til allrar hamingju er til forrit sem heitir mplayer sem getur spilað öll þessu ofangreindu formöt auk haug af öðrum (DivX, VCD, DVD, ...). Hann spilar líka alla hljóðfæla (þá helst WMA), en fyrir good old mp3/ogg spilun kemur ekkert annað til greina en xmms, enda er hér fóstur frændi WinAmps á ferð.

Þá er komið að stóru játningunni. Ég nota líka Windows, enda er það nokkuð gott leikja-stýrikerfi og leikjaframleiðendur virðast einblína á að gefa út leiki aðeins fyrir Windows. Hvort að Windows sé betra en Linux í þessum geira er hins vegar annað mál og mun ég ræða það síðar. Með Windows fylgir WMP (Windows Media Player) sem á að vera svona allsherjar margmiðlunarforrit, spilar allan andskotan af vídeó- og hljóðformöttum, en sjálfur finnst mér það ekki gott forrit. Fyrst og fremst er hann of "bloated", þ.e. alvöru fídusar og hraði víkja fyrir flottara útlit og óþarfa virkni, en þar að auki spilar hann ekki t.d. MOV eða RM, sem eru nokkur algeng formöt. Til þess að spila þannig skrár þarf að sækja aðra spilara sem eru svo einnig jafn "bloated" og WMP, þannig að þú ert kominn með fullt af spilurum sem taka upp mikið af diskplássi og resourceum.

Ekki veit ég hvort það sé til jafn hentug lausn fyrir Windows og mplayer er fyrir Linux, en þessi virðist höndla að spila öll ofangreind formöt án þess að vera "bloated". Hef ekki prófað hann sjálfur ennþá, læt vita þegar ég er búinn að því.

Ef eitt forrit sér um að spila allar tegundir af hreyfimyndum, myndum og hljóði, heitir þetta þá ekki einmiðlun frekar en margmiðlun?

Freyr skrifaði þetta þann 3. apr 2003 kl. 13:38 | Varanleg slóð | Athugasemdir (2)

apríl 2, 2003

Ekkert blog án quiz

Hingað til hef ég nú sjaldan haft gaman af svona prófum og því tekið þau sjaldan, hvað þá að birta niðurstöðurnar, en loksins fann ég próf sem höfðaði til mín:

Það fyndna er að ég hef ekki enn gerst svo frægur að prófa Slackware, það mun eflaust gerast einhverntíman í framtíðinni, en þangað til þá ligg ég kylliflatur fyrir Mandrake, sérstaklega eftir að ég setti upp útgáfu 9.1 um daginn.

Freyr skrifaði þetta þann 2. apr 2003 kl. 12:05 | Varanleg slóð

Skemmtileg forritunarmál

Sem forritari þá heyri ég endalausar deilur um hvernig eigi að forrita hlutina, hvað sé "rétt" forritun og hvað sé "vond" forritun. Má nota GOTO? Hvernig á indentation-ið að vera og hvort á að nota tab eða space eða skiptir það kannski engu máli?

Við fyrri spurningunni mæli ég með að fólk skoði ComeFrom og við seinni spurningunni þá er Whitespace málið. Þetta eru bæði skemmtilegar paródíur á þessum umdeildum forritunaraðferðum.

Og fyrst að við erum í forritunar-gríni hvort eð er, þá læt ég fylgja hér tveir gamlir en góðir:


Q: Why does a programmer mix Halloween with Christmas?
A: Because 31 oct = 25 dec


There are 10 kinds of people in this world: those who know binary and those who don't.

Freyr skrifaði þetta þann 2. apr 2003 kl. 11:36 | Varanleg slóð

apríl 1, 2003

Bless blogger

Jæja, þá hlaut að koma að því að ég, hermikrákan, skipti yfir í Movable Type og sagt upp blogger. Hver veit nema að ég fari að skrifa oftar upp úr þessu, jafnvel eitthvað af viti (ekki reikna með því samt). Ég ætla alla vegna að gefa þessu séns og fikta aðeins, sjá hvað er hægt að gera og læra sem mest.

Freyr skrifaði þetta þann 1. apr 2003 kl. 11:39 | Varanleg slóð | Athugasemdir (1)