freyr.fresnik.com : Skemmtileg forritunarmál

apríl 2, 2003

Skemmtileg forritunarmál

Sem forritari þá heyri ég endalausar deilur um hvernig eigi að forrita hlutina, hvað sé "rétt" forritun og hvað sé "vond" forritun. Má nota GOTO? Hvernig á indentation-ið að vera og hvort á að nota tab eða space eða skiptir það kannski engu máli?

Við fyrri spurningunni mæli ég með að fólk skoði ComeFrom og við seinni spurningunni þá er Whitespace málið. Þetta eru bæði skemmtilegar paródíur á þessum umdeildum forritunaraðferðum.

Og fyrst að við erum í forritunar-gríni hvort eð er, þá læt ég fylgja hér tveir gamlir en góðir:


Q: Why does a programmer mix Halloween with Christmas?
A: Because 31 oct = 25 dec


There are 10 kinds of people in this world: those who know binary and those who don't.

Freyr skrifaði þetta þann 2. apr 2003 kl. 11:36