freyr.fresnik.com : apríl 5, 2003

apríl 5, 2003

Annað heimsveldi

Ein af tilvísunum sem birtist undir "Random quote" hér til vinstri hljómar svona:

Geeks aren't interested in politics because government doesn't double its efficiency and speed once every 18 months.
(Óþekktur höfundur)

Í fyrstu fannst mér þetta fyndið og sniðug tilvísun og setti hana inn sem slíka, en eftir að hafa lesið þessa grein (innanlands PDF) þá fékk hún aðeins aðra merkingu í mínum augum.

Í megindráttum (fyrir þá sem nenna ekki að lesa) þá fjallar þessi grein um hvernig Bandaríkin er orðið óstöðvandi heimsveldi - ef þeir vilja fara í stríð, þá fara þeir í stríð alveg sama hvað alþjóðleg lög og stofnanir segja. Og engin getur gert neitt í því því það er ekki lengur til annað heimsveldi til að stöðva þá. Höfundur greinarinnar vill hins vegar meina að nýtt heimsveldi sé að rísa sem gæti átt þátt í að móta ákvörðunartöku stjórnvalda. Ólíkt því sem hefur áður þekkst þá tilheyrir þetta heimsveldi ekki neinu einu þjóðfélagi og hagsmunir þess endurspeglar það.

Hvort að það sé eitthvað til í þessu eða ekki get ég ekki sagt til um, en þetta er allavegna ansi mögnuð pæling sem virkar í samræmi við ofangreinda tilvísun. Þetta er í það minnsta góð lesning. Mæli með þessu.

Freyr skrifaði þetta þann 5. apr 2003 kl. 23:59 | Varanleg slóð