freyr.fresnik.com : Lag vikunnar: Amadeus

apríl 8, 2003

Lag vikunnar: Amadeus

Ég ætla að feta í fótspor svo margra annarra og reyna halda uppi reglulegum innsendingum á lögum undir svonefndum "Lag Vikunnar" hluta. Vonandi hef ég slegið nógu stóran varnagla með því að hafa nýtt efni vikulega frekar en daglega, en ef að svo fari að ég hafi of mikið efni þá set ég bara inn "Aukalag vikunnar". Nú er hægt að finna nýjasta "lag vikunnar" í dálkinum hér til vinstri til að hafa allt sem aðgengilegast. Smellið á "meira..." til að fá smá umsögn um lagið og möguleika á að bæta við ykkar áliti.

Það eru Moonboots sem eiga heiðurinn að því að eiga fyrsta lagið sem ég set inn, en það er gamli eighties smellurinn Amadeus. Þrefalt húrra fyrir Moonboots og þeirra útsetningu á þessu lagi!

Að vísu skilst mér að þeir hjá FM957 vilji ekki setja lagið í spilun hjá sér vegna þess að þetta er ekki útgefið af Skífunni. Það er nú hálf fúlt, ég er oftast með stillt á þá stöð vegna fjölbreytilega lagaspilunnar og hnittin skot útvarpsmannanna á ýmis mál sem snerta okkur öll... eh...

Freyr skrifaði þetta þann 8. apr 2003 kl. 09:47