Hjálp óskast
En samt eitthvað svo glatað
Að auglýsa vefslóð
Íslensk tónlist er góð
Marklaust hjá ÍMARK
Serenity
Minnis-triggerar
Lagið sem drap Bítlana
Do Anything
freyr.fresnik.com : maí 2003 |
||||||||||
|
Safn
Nýjustu færslurnar
Fjarstýringaeinföldun
Hjálp óskast En samt eitthvað svo glatað Að auglýsa vefslóð Íslensk tónlist er góð Marklaust hjá ÍMARK Serenity Minnis-triggerar Lagið sem drap Bítlana Do Anything
Plögg
--
fresnik.com
=passthru("uptime")?>
|
maí 20, 2003Litla Fresnik-betliðJæja gott fólk, þá er komið að því að ég ætla að betla aðeins. Fyrst og fremst vil ég afsaka hversu léleg eftirlíking þetta er af betlinu hans Bjarna fyrir nokkrum mánuðum síðan, en málið er einfaldlega þannig að ég er í svipaðri stöðu. Ég er með vél sem er að hýsa 9 domain, sumt fyrir einstaklinga, sumt fyrir hópa, allt án endurgjalds og viðhaldið í frítíma mínum. Þessi vél er núna orðin 6 ára gömul. Þó að það kunni ekki að hljóma mikið þá var hún keypt með það besta (sort of) sem var til á sínum tíma: * 128 MB minni Ég hef náð að smala saman meira minni í vélina og í henni er núna einnig að finna 1 stk 20 GB IDE disk, sem ég hef verið með "í láni" í þónokkurn tíma. SCSI diskarnir eru hins vegar byrjaðir að gefa sig og annar þeirra hefur að geyma stýrikerfishlutan (ekki gott). Vélin hefur verið að frjósa um miðjar nætur þegar reglulegt uppihald á sér stað. Ekki er heldur hægt að setja nýja diska í vélina, því móðurborðið er það gamalt að það þekkir þá ekki.
Ef þú ert í vafa hvort þú ætlar að láta undan betlinu í mér eða ekki, þá er hér listi yfir þau helstu domain sem ég er að hýsa. Ef þú ert að nota eitt af þessum domainum eða ert e.t.v. reglulegur gestur eitt þeirra, þá máttu endilega slá til og leggja eins og 1.000 kr inn á ofangreindan reikning :-) Hvað verður gert við peningana?
Allt umfram 40 þús færi fyrst og fremst í kaup á betri, stærri og tryggari vélbúnað af þessu ofangreindu og hugsanlega eitthvað annað smátterí (t.d. CD-ROM drif o.þ.h.).
Freyr skrifaði þetta þann 20. maí 2003 kl. 15:23 | Varanleg slóð
| Athugasemdir (2)
maí 16, 2003Klaus Wunderlich - PopcornÍ upphafi áttunda áratugs síðustu aldar átti margt skemmtilegt sér stað í tónlistarheiminum. Á meðan rokkarar hlustuðu á Led Zeppelin og framúrstefnulegu jaðartónlistaunnendur á David Bowie voru nördar þess tíma að fíla lagið Popcorn í botn. Þetta lag er eftir einhvern Gershon Kingsley sem enginn ætti að kannast við og því fæst lagið hér frekar í útsetningu orgel- og polka-snillingsins Klaus Wunderlich. Án efa ein af betri útsetningum lagsins, þó ég hafi ekki heyrt þær allar (þær eru um 500 talsins). Reyndar er þetta lag hluti af syrpu, en gott engu á síður. Smá retro í gangi, mæli annars ekki með að hlusta á þetta lag oftar en 3 í röð, lagið spilast nefnilega á eigintíðni milta mannslíkamans.
Freyr skrifaði þetta þann 16. maí 2003 kl. 15:24 | Varanleg slóð
| Athugasemdir (2)
maí 9, 2003Whale - Happy In YouAftur fær hér sænsk hljómsveit heiðurinn að lag vikunnar hjá mér, nú er röðinni komið að hljómsveitinni Whale með lagið sitt Happy In You. Tiltölulega rólegt lag (fyrir utan höktandi og rífandi gítarsóló undir lokin) með skemmtilegum sömplum og hljóðum. Helst ber að nefna tón sem gengur í gegnum lagið samfleytt í 4 mínútur án þess að breytast né stoppa (að undanskildu 2 þriggja sekúndna stopp). Funky stuff. Heja Sverige.
Freyr skrifaði þetta þann 9. maí 2003 kl. 15:18 | Varanleg slóð
maí 3, 2003Er IE að krassa hjá þér?Eins og má lesa í þessari slashdot grein, þá er búið að finna villu í Internet Explorer á Windows þannig að hann krassar þegar hann reynir að birta eftirfarandi HTML (utan <body>): <input type crash> Þetta eru náttúrulega stórfréttir, að villa skuli finnast í þessum browser á þessu stýrikerfi, vildi nú bara samt láta ykkur vita, sérstaklega í ljósi þess að stór meirihluti fólks notar því miður IE. Væntanlega kemur patch frá MS í vikunni, en því miður virðist stór meirihluti fólks ekki kunna að patcha (hint: start -> windows update).
Freyr skrifaði þetta þann 3. maí 2003 kl. 17:53 | Varanleg slóð
| Athugasemdir (1)
|
|||||||||