freyr.fresnik.com : nóvember 2004

Random quote
The following statement is true: The previous statement was false.
Leit

Safn
Nýjustu færslurnar
Plögg
Get Firefox!
--
fresnik.com
14:25:33 up 281 days, 2:09, 2 users, load average: 0.12, 0.22, 0.37

nóvember 10, 2004

Greens Keepers - Lotion

Már skrifaði einu sinni færslu og kynnti fyrir mér um leið söngleikinn Silence!. Hann er byggður á kvikmyndinni Silence of the Lambs, einhverri bestu mynd allra tíma, sem fjallar um klikkhaus, húðkrem og körfu... eða það mætti halda það miðað við hversu oft ég og vinir mínir hafa notað setninguna "put the fucking lotion in the basket".

Alla vega, ef þú hafðir jafn gaman af söngleiknum Silence! og ég, þá muntu fíla lag vikunnar, sem að þessu sinni er myndband, enda er lagið sjálft bara helmingurinn af snilldinni. Hljómsveitin heitir Greens Keepers og lagið heitir Lotion (8.7mb, innanlands).

Freyr skrifaði þetta þann 10. nóv 2004 kl. 22:05 | Varanleg slóð | Athugasemdir (1)

nóvember 3, 2004

To the american people

Your country is now officially known as Stupidland.

Freyr skrifaði þetta þann 3. nóv 2004 kl. 15:48 | Varanleg slóð

nóvember 1, 2004

Andy Hunter - Go

Jæja þá er loksins komið að lagi "vikunnar". Ég hef lítið komist í að hlusta og spekúlera í lögum undanfarið vegna anna - stórafmæli skipulagt og smá vinnutörn. Það vill reyndar þannig til að ég er einmitt að vinna núna, og eitt af lögunum sem rúlla í gegnum spilaranum er Go með Andy Hunter.

Ólíkt flestum lögum sem ég hef valið hingað til þá er mjög gott að vinna/forrita við þetta lag. Það örvar skynfærin án þess að ræna athyglinni frá því sem maður er að gera.

Freyr skrifaði þetta þann 1. nóv 2004 kl. 21:15 | Varanleg slóð