freyr.fresnik.com : október 2005

Random quote
A patriot is a terrorist who's on our side; a terrorist is a patriot who's on their side.
Leit

Safn
Nýjustu færslurnar
Plögg
Get Firefox!
--
fresnik.com
14:13:35 up 64 days, 17:45, 0 users, load average: 0.06, 0.02, 0.00

október 11, 2005

Lagið sem drap Bítlana

Jæja, þá er komið að langþráðu lagi vikunnar. Að þessu sinni hef ég ákveðið að hafa hræðilegt lag, bæði hvað varðar innihald lagsins og sögu þess. Lagið er Maxwell's Silver Hammer sem kom út á síðustu plötu Bítlana, Abbey Road, árið 1969. Paul samdi lagið, sem átti aldrei að fara inn á plötuna, þar sem að allir hinir þoldu það ekki. Þrjóskan í Paul um að klára lagið fór frekar illa í þegar útkeyrða hljómsveitarmeðlimi, enda fór sem svo að hljómsveitin hætti eftir útgáfu plötunnar. Það má því segja að þetta er lagið sem drap Bítlana.

Og talandi um dráp, ef við snúum okkur að innihald lagsins, þá má túlka það á ýmsa vegu. Ef textinn er hinsvegar lesinn beint án nokkurar myndlíkingar, þá er hér á ferðinni saga um stórklikkaðan fjöldamorðingja. Það er samt sungið í léttum dúr sem gerir lagið frekar að kolsvörtu gríni heldur en þeirri hryllilegri frásögn sem textinn í rauninni er.

Hér kemur svo link-súpan:

Lesa meira

Freyr skrifaði þetta þann 11. okt 2005 kl. 08:22 | Varanleg slóð | Athugasemdir (3)

október 7, 2005

Do Anything

Jæja, nú er föstudagur og ég er á leið heim úr vinnunni. En til hvers að fara heim alveg strax þegar maður getur búið til forrit sem gerir hvað sem er?

Gjörið svo vel, fyrsta útgáfa af DoAnything.

P.S. Það eru ennþá nokkrir böggar í því og getur því ekki höndlað allt, ef eitthvað virkar ekki, prófaðu þá eitthvað annað.

Freyr skrifaði þetta þann 7. okt 2005 kl. 16:16 | Varanleg slóð | Athugasemdir (1)