freyr.fresnik.com : nóvember 2005

Random quote
If at first you don't succeed, sky diving is not for you.
Leit

Safn
Nýjustu færslurnar
Plögg
Get Firefox!
--
fresnik.com
11:46:13 up 65 days, 15:17, 0 users, load average: 0.04, 0.02, 0.00

nóvember 30, 2005

Marklaust hjá ÍMARK

Í gær voru afhjúpaðir vefir sem unnu íslensku vefverðlaunin hjá ÍMARK. Sumt af þessu fannst mér fyndið, en svo gerði ég mér grein fyrir að þetta átti ekkert að vera grín.

Tökum dæmi.

Besti afþreyingarvefurinn.
Vinningshafi:
www.skjarinn.is - 9
Aðrir vefir sem hlutu tilnefningu:
www.visir.is - 6
www.rjominn.is - 1
www.baggalutur.is - 0
www.ruv.is - 0

Allir vita að flash er eina leiðin til að mæla afþreyingu á vefsíðu. Því meira flash, því meiri afþreying. Skjárinn.is er hér ótvíræður sigurvegari með heil 9 flash svæði á forsíðunni. Baggalútur og Ruv.is algjörlega á villugötum.

Annað dæmi:

Besta útlits- og viðmótshönnunin hlaut www.isb.is

Útlits- og viðmótshönnun? Ég skoðaði síðuna í Firefox, Internet Explorer (tvær útgáfur) og Konqueror. Síðan leit ekki eins út í neinum af þessu browserum.

* Í Firefox:

Oops.

Ok, maður hefði haldið að þetta væri enn eitt dæmið um vef sem hefur verið sérsmíðaður fyrir IE, en þegar ég skoða hann þar koma fram aðrar furðulegar villur:

* Í aðeins eldri útgáfu af IE virkar ekki "Innskráning í Netbanka" nema neðri hlutinn af takkanum.

* Í Konqueror virkar ekki "stækka letur" takkinn.

Að öðru leyti, fínt viðmót... en á hún skilið að vinna umfram t.d. Glitnir.is sem var tilnefnd og er eiginlega alveg eins síða, nema hvað að hún lítur ekki út fyrir að hafa neina galla líkt og ofangreinda galla isb.is.

En hey, hvað er þetta... Íslandsbanki er einn af styrktaraðilum verðlaunarinnar.

Uhhmm...

Mér var sagt að í fyrra hafi Landsbankinn, annar styrktaraðili, unnið til verðlauna með vef sem fór í loftið daginn fyrir verðlaunafhendinguna og að starfsmaður úr tæknideild bankans hafi verið í dómnefndinni. Ég ætlaði að fletta þessu upp, en leitin á síðu ÍMARKs gefur mér bara villu. Getur einhver staðfest þetta?

Freyr skrifaði þetta þann 30. nóv 2005 kl. 15:21 | Varanleg slóð | Athugasemdir (5)

nóvember 24, 2005

Serenity

Það virðast fáir Íslendingar vita að Serenity, sem er einmitt í bíó þessa daganna, er byggð á þáttaröðum sem heita Firefly. Satt að segja þá hefði ég varla vitað þetta sjálfur ef ég væri ekki að lesa Slashdot. Miðað við hversu mikið er fjallað um þættina þar gat ég ekki verið annað en áhugasamur um þessa þætti og hvernig Fox, sem á útgáfuréttinn á þáttunum, gjörsamlega slátraði göngu hennar með eintómu klúðri.

Smá re-cap um sögu þáttanna:

  • Josh Whedon, sami gaur og bjó til Buffy the Vampire Slayer og Angel býr til (skrifar, leikstýrir og framleiðir) Firefly. Fox kaupir útgáfuréttinn (rétt eins og Buffy og Angel) og leggur til mikinn pening við gerð þáttanna. Þetta er algjör draumastaða fyrir Josh, hann fær að gera þættina nánast eftir sínu höfði.
  • Þegar kemur til sýninga ákveður Fox að setja Firefly í timeslot dauðans, seint á föstudagskvöldi. Tölfræðin sýnir að aðeins einn sjónvarpsþáttur (X-Files) hefur lifað af þennan sýningartíma.
  • Röðin á þáttunum ruglast og fyrsti þáttur er ekki sýndur fyrstur - örugg leið til að rugla áhorfendur í ríminu og jafnvel fæla frá.
  • Sýningartími er færður til án fyrirvara. Áhugasamir áhorfendur sem voru búnir að koma sér fyrir fyrir framan sjónvarpið á föstudagskvöldi lentu í því að horfa á endursýningu á hafnarboltaleik og fengu ekkert að vita hvenær þátturinn sem átti að vera væri sýndur.
  • Fox þurfa að skerða niður kostað við sjónvarpsþáttagerð og svo virðist sem stafurinn F hafi orðið fyrir valið þegar velja ætti sjónvarpsþætti. Fox hættir að framleiða Futurama, Family Guy, Firefly og nokkra aðra minni spámenn. Fox heldur því fram að Firefly hafi ekki verið nógu vinsælt þegar spurt er um ástæðu.
  • Fox gefur út alla (14) þættina sem voru búnir til af Firefly á DVD. Fyrsta upplag selst upp á mettíma og þeir hafa varla undan að framleiða fleiri DVD. Þættirnir hafa verið á Amazon DVD Top Seller samfleytt í 2 ár og er núna þegar þetta er ritað í 12. sæti.
  • Fox sér að sér, en treysta sér samt ekki til að endurvekja þættina. Josh biður um að fá að búa til kvikmynd í staðin, sem þeir sættast á.

Nú hef ég ekki séð myndina sjálfur, en mér skilst að þó að hún standi ein og sér, þá er skemmtilegra að hafa séð þættina. Ég hef sjálfur horft bara á fyrsta þáttinn (sem vill svo skemmtilega til að hann heitir líka Serenity) að svo stöddu, en þetta lofar góðu. Mjög góðu.

Hér er hægt að kaupa þættina og ef maður skoðar umsagnir frá fólki sér maður ákveðið trend: "Whoever cancelled this should be ashamed!!!!" - "YES! It really is that good".

Kannski hljóma ég eins og sölumaður með þetta allt saman, en mér finnst bara synd hvernig farið með þessa þætti sem áttu svo sannarlega skilið að lifa lengur.

Freyr skrifaði þetta þann 24. nóv 2005 kl. 08:56 | Varanleg slóð | Athugasemdir (1)

nóvember 21, 2005

Minnis-triggerar

Það er merkilegt hvernig mannsheilinn virkar. Suma hluti getur maður ómögulega munað þangað til maður lærir eitthvað sem "trigger"-ar minninguna.

Sem dæmi þá gat ég ómögulega munað hvort að nýtt tungl væri með vaxandi eða minnkandi sigð fyrr en að einhver sagði við mig "komma, koma."

Íris gat líka ómögulega munað hvort Hella eða Hvolsvöllur kæmi á undan þegar maður keyrir austur fyrr en að ég sagði við hana að "Hella" er styttra en "Hvolsvöllur", sem á þá bæði við um nöfnin sjálf og fjarlægð frá höfuðborginni.

Ert þú með einhverja minnis-triggera?

Freyr skrifaði þetta þann 21. nóv 2005 kl. 10:18 | Varanleg slóð | Athugasemdir (2)