freyr.fresnik.com : Minnis-triggerar

Random quote
Geeks aren't interested in politics because government doesn't double its efficiency and speed once every 18 months.
Leit

Safn
Nýjustu færslurnar
Plögg
Get Firefox!
--
fresnik.com
13:18:10 up 235 days, 1:01, 2 users, load average: 0.36, 0.31, 0.18

nóvember 21, 2005

Minnis-triggerar

Það er merkilegt hvernig mannsheilinn virkar. Suma hluti getur maður ómögulega munað þangað til maður lærir eitthvað sem "trigger"-ar minninguna.

Sem dæmi þá gat ég ómögulega munað hvort að nýtt tungl væri með vaxandi eða minnkandi sigð fyrr en að einhver sagði við mig "komma, koma."

Íris gat líka ómögulega munað hvort Hella eða Hvolsvöllur kæmi á undan þegar maður keyrir austur fyrr en að ég sagði við hana að "Hella" er styttra en "Hvolsvöllur", sem á þá bæði við um nöfnin sjálf og fjarlægð frá höfuðborginni.

Ert þú með einhverja minnis-triggera?

Freyr skrifaði þetta þann 21. nóv 2005 kl. 10:18
Athugasemdir

Pabbi kenndi mér einu sinni að skilja þetta með tunglið með því að láta hendurnar fylla inn í það sem vantaði af tunglinu. Ef vinstri höndin fyllti tunglið, þá var það vaxandi. Vinstri=vaxandi. Hef munað þetta í fjöldamörg ár.

Ásdís Huld skrifaði þetta þann 24. nóv 2005 kl. 16:08

Úps, gleymdi þessu:

Jólin eru að koma og margir þurfa að taka undir sönginn Heims um ból. Erindin eru þrjú og þó fólk kunni textann að þeim öllum getur verið erfitt að muna röðina á erindum nr. 2 og 3. Ég er auðvitað bókasafnsfræðinörd og segi því:
Stafrófsröðin er rétt á þessum erindum: „Heimi í“ er á undan „Heyra má“.

Ásdís Huld skrifaði þetta þann 24. nóv 2005 kl. 16:12
Bæta við athugasemd









Muna hver ég er?





TrackBack ávísun fyrir þessa færslu:
http://www.fresnik.com/cgi-bin/mt-tb.cgi/59