Hjálp óskast
En samt eitthvað svo glatað
Að auglýsa vefslóð
Íslensk tónlist er góð
Marklaust hjá ÍMARK
Serenity
Minnis-triggerar
Lagið sem drap Bítlana
Do Anything
freyr.fresnik.com : Marklaust hjá ÍMARK |
||
|
Random quote
I almost had a psychic girlfriend but she left me before we met.
Safn
Nýjustu færslurnar
Fjarstýringaeinföldun
Hjálp óskast En samt eitthvað svo glatað Að auglýsa vefslóð Íslensk tónlist er góð Marklaust hjá ÍMARK Serenity Minnis-triggerar Lagið sem drap Bítlana Do Anything
Plögg
--
fresnik.com
11:46:23 up 65 days, 15:18, 0 users, load average: 0.03, 0.02, 0.00
|
nóvember 30, 2005Marklaust hjá ÍMARKÍ gær voru afhjúpaðir vefir sem unnu íslensku vefverðlaunin hjá ÍMARK. Sumt af þessu fannst mér fyndið, en svo gerði ég mér grein fyrir að þetta átti ekkert að vera grín. Tökum dæmi. Besti afþreyingarvefurinn. Allir vita að flash er eina leiðin til að mæla afþreyingu á vefsíðu. Því meira flash, því meiri afþreying. Skjárinn.is er hér ótvíræður sigurvegari með heil 9 flash svæði á forsíðunni. Baggalútur og Ruv.is algjörlega á villugötum. Annað dæmi: Besta útlits- og viðmótshönnunin hlaut www.isb.is Útlits- og viðmótshönnun? Ég skoðaði síðuna í Firefox, Internet Explorer (tvær útgáfur) og Konqueror. Síðan leit ekki eins út í neinum af þessu browserum. * Í Firefox: Oops. Ok, maður hefði haldið að þetta væri enn eitt dæmið um vef sem hefur verið sérsmíðaður fyrir IE, en þegar ég skoða hann þar koma fram aðrar furðulegar villur: * Í aðeins eldri útgáfu af IE virkar ekki "Innskráning í Netbanka" nema neðri hlutinn af takkanum. * Í Konqueror virkar ekki "stækka letur" takkinn. Að öðru leyti, fínt viðmót... en á hún skilið að vinna umfram t.d. Glitnir.is sem var tilnefnd og er eiginlega alveg eins síða, nema hvað að hún lítur ekki út fyrir að hafa neina galla líkt og ofangreinda galla isb.is. En hey, hvað er þetta... Íslandsbanki er einn af styrktaraðilum verðlaunarinnar. Uhhmm... Mér var sagt að í fyrra hafi Landsbankinn, annar styrktaraðili, unnið til verðlauna með vef sem fór í loftið daginn fyrir verðlaunafhendinguna og að starfsmaður úr tæknideild bankans hafi verið í dómnefndinni. Ég ætlaði að fletta þessu upp, en leitin á síðu ÍMARKs gefur mér bara villu. Getur einhver staðfest þetta? Freyr skrifaði þetta þann 30. nóv 2005 kl. 15:21Athugasemdir
Þetta gæti allavega verið betra,smá um þetta hér: http://truth.is/archives/000635.html Gunnar skrifaði þetta þann 30. nóv 2005 kl. 21:22Mér finnst viðmótið skelfilegt! Gott viðmót finnst mér þar sem leitt er á einn punkt og afskaplega lítið truflar augað eins og t.a.m. auglýsingar og svoleiðis óáran. mbl.is og visir.is hafa misst sig gjörsamlega í þessu auglýsingarugli og bankarnir auglýsa þjónustu sína grimmt... eiginlega of grimmt á eigin síðum. Svo er það allt þetta tenglaflóð, í minni hönnunarfræði segir að því færri flokkar því betra, hafðu undirflokka og undir- undirflokka, þá ertu á grænni grein. Hallur skrifaði þetta þann 23. des 2005 kl. 00:54Það var nú töluverð umræða um þetta í fyrra eða hitteðfyrra... einhver tók saman tilnefningar, atkvæði og bar það saman við fjölda sæta í dómnefndum eða eitthvað álíka. Þetta virðist lítið hafa breyst. Skjárinn er hrikalega vondur vefur, eins og reyndar flestir vefir hjá viðlíka báknum og síminn er. Drengur skrifaði þetta þann 20. feb 2006 kl. 17:49Hehe... greinilega í fyrra... þetta er nú líklega póst frá því að sú umræða átti sér stað. Vá hvað þú þarft að fara að blogga maður! Drengur skrifaði þetta þann 20. feb 2006 kl. 17:50Blogg-blóð rennur ei í mínum æðum, en skulum sjá hvað ég get gert. :) Freyr skrifaði þetta þann 21. feb 2006 kl. 14:08 |
|