Hjálp óskast
En samt eitthvað svo glatað
Að auglýsa vefslóð
Íslensk tónlist er góð
Marklaust hjá ÍMARK
Serenity
Minnis-triggerar
Lagið sem drap Bítlana
Do Anything
freyr.fresnik.com : Íslensk tónlist er góð |
||
|
Random quote
Experience is something you don't get until just after you need it.
Safn
Nýjustu færslurnar
Fjarstýringaeinföldun
Hjálp óskast En samt eitthvað svo glatað Að auglýsa vefslóð Íslensk tónlist er góð Marklaust hjá ÍMARK Serenity Minnis-triggerar Lagið sem drap Bítlana Do Anything
Plögg
--
fresnik.com
14:13:06 up 64 days, 17:44, 0 users, load average: 0.00, 0.00, 0.00
|
febrúar 11, 2006Íslensk tónlist er góðÉg er búinn að vera að vinna síðan snemma í morgun. Það eru fáir hérna, sem mér finnst þægilegt, get látið tónlistina rúlla og fengið það næði sem einhvernveginn gerir mig afkastameiri en venjulega. En í dag hef ég verið óvenjulega hugmyndaríkur og afkastamikill. Ég fór að spá í hver ástæðan væri, svona til að geta komist í þennan gír aftur, fór ég að spá í playlistann hjá mér og tók eftir því að þennan morgunin hefur verið óvenjulega hátt hlutfall af íslenskum lögum (eða réttara sagt lög eftir íslenskar hljómsveitir). Ég vil því þakka eftirfarandi aðilum: Ampop, Baggalútur, Byltan, Dáðadrengir, Dr. Spock, Dr. Gunni, Egó, Erla Þorsteinsdóttir & Haukur Morthens, Gus Gus, Hjálmar, Hraun!, Hrekkjusvín, Igore, Leaves, Mínus, Mugison, Quarashi, Selma, Sessý, Silvía Nótt, Stuðmenn, Todmobile, Trabant, Vínyll, Þórir. Nýlegar tónlistar-uppgötvanir hjá mér (fyrir utan þær íslensku) eru Trans-Siberian Orchestra og Mint Royale. TSO uppgötvaði ég þegar ég rakst á þessa klippu á netinu fyrir síðustu jól. Lagið heitir Wizards in Winter. Mint Royale tók ég eftir þegar ég sá þessa auglýsingu frá Volkswagen. Lagið sjálft fæst hér. Enjoy. Freyr skrifaði þetta þann 11. feb 2006 kl. 11:57Athugasemdir
Fæ rosalegan Mike Oldfield fíling í laginum með TSO, ég er einmitt búinn að vera að hlusta á Tubelarbells II núna uppá síðkastið. Mint Royale remixið minnir heldur á Amiga tölvuleik :-) sælla minninga. Zato skrifaði þetta þann 11. feb 2006 kl. 23:17Bæta við athugasemd
TrackBack ávísun fyrir þessa færslu:
http://www.fresnik.com/cgi-bin/mt-tb.cgi/62 |
|