freyr.fresnik.com : mars 1, 2006

Random quote
People in cars cause accidents - accidents in cars cause people.
Leit

Safn
Nýjustu færslurnar
Plögg
Get Firefox!
--
fresnik.com
15:34:35 up 281 days, 3:18, 2 users, load average: 1.17, 0.70, 0.51

mars 1, 2006

Að auglýsa vefslóð

Mér finnst það alltaf jafn skrítið að heyra auglýsingar í útvarpinu eða sjá þær í umferðinni, t.d. á skiltum eða á strætisvögnum, þar sem vefslóð á vefsíðu fyrirtækisins er sérstaklega tekin fram.

Mér finnst það reyndar líka skrítið að þegar ég segi fólki frá einhverri síðu þá spyr það um vefslóðina, jafnvel tilbúið að skrifa hana niður. Meiri að segja þegar mér er sagt frá einhverri vefsíðu verður fólk oft hissa á því að ég skuli ekki spyrja um vefslóðina ef ég hef á annað borð sýnt einhvern áhuga.

Ég vil því endilega benda fólki á að síðan árið 1998 hefur verið til leitarvél sem heitir Google. Þú kannast kannski við hana.

Þegar ég segi fólki frá því að það séu komnar nýjar myndir á heimasíðu barnanna, þá er ég ekki að ætlast til þess að þú munir vefslóðina eða þurfir einu sinni að skrifa hana niður. Ég er ekki heldur að ætlast til að þú farir á Barnaland (sem virðist vera de facto síðan fyrir börn á Íslandi) og eyðir tíma í oft fánýta leit. Nei, það eina sem ég ætlast til af þér er að fara á Google og slá inn eitthvað sem gæti vísað þér á vefsíðu barna minna, t.d. nafnið mitt, barnsmóður mína eða jafnvel eitthvert barna minna (ég get þó skilið ef fólk sem er lítið í sambandi við mann hafi þau ekki).

Til þeirra fyrirtækja sem er að eyða samtals fleiri milljónum króna í að auglýsa vefslóð þá vil ég benda á að eyða frekar þeim peningum í eitthvað nytsamlegra. Jafnvel endurtekningar á nafni fyrirtækis eða stikkorð sem lýsa starfsemi þess skilar betri árangri en að auglýsa bara vefslóðina.

Stórt skilti úti í bæ sem stendur ekkert á nema "www.komduhingad.is" á ekki eftir skila neinu því að í fyrsta lagi ætla ég ekki að fara skrifa niður slóðina, allra síst ef ég er að keyra, og í öðru lagi vantar upplýsingar um hvað er að finna á vefsíðuna. Ef þetta væri t.d. fyrirtæki sem seldi gæludýr væri nærri lagi að auglýsa t.d. "Komdu hingað, Hvutti." með mynd af hundi og/eða öðrum gæludýrum og undirskriftina "Komdu Hingað Gæludýr". Engin vefslóð. Ef fyrirtækið hefur auglýst sig vel þá ættu að vera góða líkur á að fyrirtækið komi upp á fyrstu leitarsíðu þegar "Gæludýr" er slegið inn á Google og nánast öruggt að vefslóðin komi upp efst ef leitarstrengurinn inniheldur nánari upplýsingar, s.s. nafn á fyrirtæki eða staðsetningu.

M.ö.o. þá hefur mikilvægi vefslóða minnkað með tilkomu leitarvéla og orðið að algjöru aukaatriði með tilkomu Google.

Freyr skrifaði þetta þann 1. mar 2006 kl. 09:19 | Varanleg slóð | Athugasemdir (2)