Hjálp óskast
En samt eitthvað svo glatað
Að auglýsa vefslóð
Íslensk tónlist er góð
Marklaust hjá ÍMARK
Serenity
Minnis-triggerar
Lagið sem drap Bítlana
Do Anything
freyr.fresnik.com : Að auglýsa vefslóð |
||
|
Random quote
A conclusion is the place where you got tired of thinking.
Safn
Nýjustu færslurnar
Fjarstýringaeinföldun
Hjálp óskast En samt eitthvað svo glatað Að auglýsa vefslóð Íslensk tónlist er góð Marklaust hjá ÍMARK Serenity Minnis-triggerar Lagið sem drap Bítlana Do Anything
Plögg
--
fresnik.com
14:01:48 up 235 days, 1:45, 2 users, load average: 0.21, 0.26, 0.19
|
mars 1, 2006Að auglýsa vefslóðMér finnst það alltaf jafn skrítið að heyra auglýsingar í útvarpinu eða sjá þær í umferðinni, t.d. á skiltum eða á strætisvögnum, þar sem vefslóð á vefsíðu fyrirtækisins er sérstaklega tekin fram. Mér finnst það reyndar líka skrítið að þegar ég segi fólki frá einhverri síðu þá spyr það um vefslóðina, jafnvel tilbúið að skrifa hana niður. Meiri að segja þegar mér er sagt frá einhverri vefsíðu verður fólk oft hissa á því að ég skuli ekki spyrja um vefslóðina ef ég hef á annað borð sýnt einhvern áhuga. Ég vil því endilega benda fólki á að síðan árið 1998 hefur verið til leitarvél sem heitir Google. Þú kannast kannski við hana. Þegar ég segi fólki frá því að það séu komnar nýjar myndir á heimasíðu barnanna, þá er ég ekki að ætlast til þess að þú munir vefslóðina eða þurfir einu sinni að skrifa hana niður. Ég er ekki heldur að ætlast til að þú farir á Barnaland (sem virðist vera de facto síðan fyrir börn á Íslandi) og eyðir tíma í oft fánýta leit. Nei, það eina sem ég ætlast til af þér er að fara á Google og slá inn eitthvað sem gæti vísað þér á vefsíðu barna minna, t.d. nafnið mitt, barnsmóður mína eða jafnvel eitthvert barna minna (ég get þó skilið ef fólk sem er lítið í sambandi við mann hafi þau ekki). Til þeirra fyrirtækja sem er að eyða samtals fleiri milljónum króna í að auglýsa vefslóð þá vil ég benda á að eyða frekar þeim peningum í eitthvað nytsamlegra. Jafnvel endurtekningar á nafni fyrirtækis eða stikkorð sem lýsa starfsemi þess skilar betri árangri en að auglýsa bara vefslóðina. Stórt skilti úti í bæ sem stendur ekkert á nema "www.komduhingad.is" á ekki eftir skila neinu því að í fyrsta lagi ætla ég ekki að fara skrifa niður slóðina, allra síst ef ég er að keyra, og í öðru lagi vantar upplýsingar um hvað er að finna á vefsíðuna. Ef þetta væri t.d. fyrirtæki sem seldi gæludýr væri nærri lagi að auglýsa t.d. "Komdu hingað, Hvutti." með mynd af hundi og/eða öðrum gæludýrum og undirskriftina "Komdu Hingað Gæludýr". Engin vefslóð. Ef fyrirtækið hefur auglýst sig vel þá ættu að vera góða líkur á að fyrirtækið komi upp á fyrstu leitarsíðu þegar "Gæludýr" er slegið inn á Google og nánast öruggt að vefslóðin komi upp efst ef leitarstrengurinn inniheldur nánari upplýsingar, s.s. nafn á fyrirtæki eða staðsetningu. M.ö.o. þá hefur mikilvægi vefslóða minnkað með tilkomu leitarvéla og orðið að algjöru aukaatriði með tilkomu Google. Freyr skrifaði þetta þann 1. mar 2006 kl. 09:19Athugasemdir
Þú gleymir einu (eða kannski tvennu eða þrennu...) Það er ekki sjálfgefið að fyrirtæki hafi yfirleitt vefsíðu. Ótrúlegt, já, en samt satt. Þess vegna er gott að skerpa á því. Með því að auglýsa vefslóð eru fyrirtæki ekki bara að minna á slóðina sjálfa, heldur líka að segja "Mundu, við erum með vefsíðu!" Merkilegt nokk, þá eru ekki allir jafn gáfaðir og við - en fyrirtækin sækjast samt eftir viðskiptum við þetta fólk... ;) Ásdís Huld skrifaði þetta þann 1. mar 2006 kl. 11:13Góður punktur, þetta með að fyrirtæki vilji minna á að þeir séu með vefsíðu og eflaust er ég að gleyma fleiri en nokkur önnur atriði, enda var þessi "pistill" skrifaður af mér, sem hefur nánast enga reynslu af markaðsmálum og meir en næga reynslu af netmálum. Það er því ekki að ástæðulausu að það sé smá hræsnisbragur af þessu öllu saman. Engu á síður þá vil ég aðeins svara þessu. Við búum á Íslandi og það er 21. öld. Um 80% heimila hafa tölvu og einhver heill hellingur (hef ekki tölu) nota hana daglega, oftast til að fara á netið. Ef fyrirtæki hefur efni á að auglýsa sig þá hefur það efni á heimasíðu, þó ekki væri nema ein einföld síða sem lýsti fyrirtæki og hvernig best væri að hafa samband eða komast til þeirra. Það er engin afsökun fyrir fyrirtæki sem er að sækjast eftir viðskipti við fólk að ekki hafa vefsíðu. Á hinum endanum er hitt vandamálið, eins og þú bendir á: netnotandi sem kann ekki að leita. Þetta er að mínu mati ýfið erfiðara vandamál því það krefst þá þverskurðarþekkingu að nota leitarvél. Ég trúi því samt að þetta sé eitthvað sem er að breytast. Ef fólk á annað borð er nettengt kemst það varla hjá því að rekast á "google" einhverstaðar, enda hafa þeir náð að troða sér inn á ótrúlegan fjölda vefsíðna með AdSense, auglýsingamaskínunni þeirra, og það þarf ekki nema nokkrar leitir til að sjá hversu skilvirkt þetta er. Flestir browserar eru meira að segja með google-textasvæði við hliðina á vefslóða-textasvæðinu. Það er of mikið af upplýsingum á netinu. Þú átt ekki að þurfa að muna vefslóðir. Það er gamaldags, hægvirkt og villugjarnt. Jesú var með þetta á hreinu: "Leitið og þér munið finna" Freyr skrifaði þetta þann 1. mar 2006 kl. 16:41Bæta við athugasemd
TrackBack ávísun fyrir þessa færslu:
http://www.fresnik.com/cgi-bin/mt-tb.cgi/63 |
|