freyr.fresnik.com : mars 2, 2006

Random quote
The hardness of the butter is proportional to the softness of the bread.
Leit

Safn
Nýjustu færslurnar
Plögg
Get Firefox!
--
fresnik.com
12:49:16 up 235 days, 32 min, 2 users, load average: 0.16, 0.13, 0.09

mars 2, 2006

En samt eitthvað svo glatað

Íslendingar hafa alltaf tekið Eurovision full alvarlega og látið keppnisskapið stíga sér til höfuðs, alveg síðan að við ætluðum að leggja undir okkur Evrópu með Gleðibankann. Reyndar höfum við tvisvar slakað á og sent frekar lag sem okkur fannst bara skemmtilegt, nefnilega Sókrates árið 1988 og Minn Hinsti Dans árið 1997. Það er eins og að við fáum nóg af Eurovision-rembingnum á 9 ára fresti.

Það hefur varla farið framhjá neinum að í ár erum við að endurtaka leikinn, Silvía Nótt hlaut rússneska met-kosningu og það er alveg á hreinu að engin af þeim sem gáfu henni þessi 70.000+ atkvæði eru að ætlast til þess að lagið rústi þessu dæmi og fái tremma mörg stig, þó svo að það væri óneitanlega skemmtilegur bónus. Annað held ég að gildi um þá sem kusu Þér við hlið, lagið sem Regína söng og hlaut yfir 30.000 atkvæði. Það er lag sem við höfðum ætlast til að mundi vinna og ef það hefði unnið undankeppnina værum við vafalaust að tapa okkur yfir "stúlkunni okkar" og því epíska meistarastykki sem við ætlum að senda til Grikkalands.

Kannski hefði það náð langt, kannski ekki. Persónulega mundi ég vilja senda það á næsta ári, þegar við erum komin í Eurovision-rembinginn aftur, en sennilega fáum við aldrei að vita hvernig Evrópubúar taka því lagi. Þjóðarsálin virðist ekki vera stemmd fyrir því núna. Í ár ætlum við að skemmta okkur, sama í hvaða sæti við lendum.

Sjáumst svo aftur árið 2015.

Freyr skrifaði þetta þann 2. mar 2006 kl. 08:49 | Varanleg slóð | Athugasemdir (2)