Hjálp óskast
En samt eitthvað svo glatað
Að auglýsa vefslóð
Íslensk tónlist er góð
Marklaust hjá ÍMARK
Serenity
Minnis-triggerar
Lagið sem drap Bítlana
Do Anything
freyr.fresnik.com : En samt eitthvað svo glatað |
||
|
Random quote
The man who does not read good books has no advantage over the man who cannot read them.
Safn
Nýjustu færslurnar
Fjarstýringaeinföldun
Hjálp óskast En samt eitthvað svo glatað Að auglýsa vefslóð Íslensk tónlist er góð Marklaust hjá ÍMARK Serenity Minnis-triggerar Lagið sem drap Bítlana Do Anything
Plögg
--
fresnik.com
11:45:45 up 65 days, 15:17, 0 users, load average: 0.07, 0.03, 0.00
|
mars 2, 2006En samt eitthvað svo glataðÍslendingar hafa alltaf tekið Eurovision full alvarlega og látið keppnisskapið stíga sér til höfuðs, alveg síðan að við ætluðum að leggja undir okkur Evrópu með Gleðibankann. Reyndar höfum við tvisvar slakað á og sent frekar lag sem okkur fannst bara skemmtilegt, nefnilega Sókrates árið 1988 og Minn Hinsti Dans árið 1997. Það er eins og að við fáum nóg af Eurovision-rembingnum á 9 ára fresti. Það hefur varla farið framhjá neinum að í ár erum við að endurtaka leikinn, Silvía Nótt hlaut rússneska met-kosningu og það er alveg á hreinu að engin af þeim sem gáfu henni þessi 70.000+ atkvæði eru að ætlast til þess að lagið rústi þessu dæmi og fái tremma mörg stig, þó svo að það væri óneitanlega skemmtilegur bónus. Annað held ég að gildi um þá sem kusu Þér við hlið, lagið sem Regína söng og hlaut yfir 30.000 atkvæði. Það er lag sem við höfðum ætlast til að mundi vinna og ef það hefði unnið undankeppnina værum við vafalaust að tapa okkur yfir "stúlkunni okkar" og því epíska meistarastykki sem við ætlum að senda til Grikkalands. Kannski hefði það náð langt, kannski ekki. Persónulega mundi ég vilja senda það á næsta ári, þegar við erum komin í Eurovision-rembinginn aftur, en sennilega fáum við aldrei að vita hvernig Evrópubúar taka því lagi. Þjóðarsálin virðist ekki vera stemmd fyrir því núna. Í ár ætlum við að skemmta okkur, sama í hvaða sæti við lendum. Sjáumst svo aftur árið 2015. Freyr skrifaði þetta þann 2. mar 2006 kl. 08:49Athugasemdir
Þegar ég hugsa til júvisjón þessa daga er mér alltaf hugsað til peningana sem þeir græddu á þessu. 180.000 sms X 99 kr = 17.820.000 kr og það er bara seinasta kvöldið. Að meðal tali voru eitthvað um 70.000 sms send í hvert skipti utan aðal kvöldsins sem væri þá c.a. 6.960.000 X 3 = 20.880.000 kr. Allt í allt væri það þá 38.700.000 kr sem þeir höluðu inn á sms kostningunum einum, ekki slæmt. p.s.Þessi peningur er fyrir utan það sem þeir fengu fyrir auglýsngar. Zato skrifaði þetta þann 7. mar 2006 kl. 08:27Ég hef heyrt að þessi keppni kostaði einar 70 millur, þannig þeir hafa jafnvel náð langleiðina í að komast út á núllið. Ekki gleyma heldur að Síminn fær eitthvað eins og 50% af þessu. Þó að RÚV hafi grætt mikið á SMSum þýðir ekki að þeir hafi hagnast. Freyr skrifaði þetta þann 7. mar 2006 kl. 09:39 |
|